Torfufellssystur
26.05.2009 22:21:51 / elva

Lífið er ljúft fyrir norðan:)

jæja...

Lífið fyrir norðan er ljúft og gott:) Öll heila fjölskyldan að koma saman um helgina ... fermingar og skógardagur í Reitnum okkar fremra:)

Lilja varð 25 ára í gær...orðin svakalega gömul...hihi...og já elsta systirin hún Svava er ófrísk, á að eiga í byrjun desember og Harpa er bara enn hún Harpa:)

Pabbi á afmæli á fimmtudag...verður 47 ára gamall...kallinn...hihi...

En jæja ætlaði bara  að henda inn einu stuttu til að afmá síðustu desemberfærslu...hehehe...

Hafið það gott
lullz


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2008 22:13:10 / elva

Ég verð aldrei búin....

að pakka...

ohh þetta er svo leiðinlegt. Maður ætlar að vera eldsnöggur með eitthvað en svo  tekur það óratíma:)
Jæja þetta gengur eitthvað er búin með bókahilluna og meira að segja búin að henda henni út...hihi...aðeins meira pláss í viku:d og svo pakkaði ég þeim fötum sem ég taldi að ég þyrfti ekki að nota og já talandi um það...heill kassi undir glös og þau eru ekki öll komin í kassa...svolítið mikið fyrir minn smekk...hver var það aftur sem safnar skotglösum??

En já ég fór í jólaklippinguna síðasta fimmtudag og ykkur að segja þá breytti ég aðeins til...þegar ég mætti í vinnuna á föstudaginn þá hrukku flestir við í fyrstu, fannst þetta eitthvað skrítið en öllum þótti þetta flott þegar þeir voru farnir að venjast breytingunni...en þið verðið bara að bíða og sjá ætla ekki að segja neitt...þið verðið þá bara að gera  ykkur sérferð ef forvitnin ætar að tröllríða öllu.

En já hann Óttar minn er kominn inn í HA þannig að þá er bara allt á hreinu hjá okkur...þá er það bara að klára að pakka, þrífa og drífa sig svo heim...

sé ykkur
lullz


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 17:53:00 / elva

Jólin nálgast óðfluga...

já ég er bara komin í jólaskap. Það eru nú alveg 3 vikur síðan ég kveikti á fyrstu seríunni og 2 vikur síðan fyrstu jólalögin voru sett á fóninn...og nú erum við farin að skreyta í vinnunni....æði:d Reyndar eru ekki allir jafnsammála að byrja svona "snemma" hehe...persónulega mér finnst  þetta nú alveg að verða í síðasta lagi fyrir seríur:)

En já ég er jafnvel að hugsa um að skella mér norður um næstu helgi í laufabrauð...Oddi þarf að læra þannig að ég býst við að fara bara ein:) Maður á sko að njóta þess að eiga allar helgar fyrir sig og þurfa ekkert að læra:) sérstaklega þar sem það fer að líða að prófum hjá ýmsum:haha:

EN jæja gangi ykkur vel í prófunum sem eruð að fara í þau og til ykkar hinna...góðan aðfara að jólum...hehe

lullz


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 12:32:57 / elva

Komið á hreint

Já ég er komin með vinnu fyrir norðan þannig að við erum að fara að flytja norður fyrir jól:) Ohh ég hlakka geðveikt til, verður magnað en ég á eftir að sakna litlu krúttanna minn á Sólgarði mikið:cry: Þau eru bara algjört æði...koma skríðandi til manns og knúsa mann og kyssa...svo sæt...

En það er ekki meira í bili:)
lullz


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.10.2008 16:53:33 / elva

Norður yfir heiðar...

Hæhæ

Jæja það eru nú aldeilis fréttir af okkur skötuhjúum:d...Við erum nefnilega að fara að flytja norður um áramótin og ég hlakka ekkert smá til:) Óttar ætlar að reyna að fá námið sitt flutt í HA, hann á að fá þetta allt metið en við vitum ekki hvort hann kemst inn fyrr en í byrjun desember...já þeir eru sko ekkert að spara það í skipulagi blessaðir:)

Já og ég er að leita mér að vinnu...er komin með vinnu á Pálmholti...svona næstum því, vonandi...veit ekki alveg hvenær ég veit það nákvæmlega en það er allavega mjög líklegt.

En við vorum fyrir norðan um síðustu helgi. Fórum á miðvikudagskvöldi því það var frí í vinnunni hjá mér bæði fimmtudag og föstudag. Óttar fór auðvitað á gæsaskytterí báða dagana meðan ég endasentist á milli leikskóla í vinnuleit...hehe...og svo hjálpuðum við Þóri mági mínum á laugardaginn við það að festa dúk á skítatankinn hans. Það var sko gott að maður var velklæddur því það var skítkalt:lol:...hehe.

En reyndar vorum við öll samankomin fyrir norðan um helgina. Lilja og Andri komu norður og Benni, Halla og Gabríel að austan og Álfsól kom líka að sunnan þannig að það var hálfgert ættarmót þarna í Vallartröðinni:) Stuð

Gabríel er orðinn svo stór, farinn að hlaupa um allt...algjör prakkari:)

En jæja þá er það komið í bili:)

Veriði svo dugleg að kommenta:)

lullz


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.09.2008 03:15:52 / elva

Tilraun 2:)

Hæhæ

Ekki gott að reyna að blogga í vinnunni því þó maður eigi pásu þá veit maður aldrei hvað gerist á leikskólanum...ef einhver vaknar þá er friðurinn og pásan úti...hehe...en þau eru nú voðalega yndisleg þessi börn:)

En já hvert var ég komin:) Já við Óttar erum að spá í að koma norður um áramótin ef allt fer að óskum...það er bara svo gott að vera fyrir norðan...svo hreint og tært loft...hehehe. Reyndar eru flestir vinir manns hér fyrir sunnan en þeir eru nú svo bissý yfirleitt ...hehe...og já svo er það auðvitað dansinn...hann er ekki fyrir norðan:cry: en maður þyrfti þá bara að finna sér annað hobbý sem felur í sér hreyfingu:)

Fór í dag í heimsókn til Diddu og Péturs og sá litlu frænku mína...algjört krútt...SIggi Gústi og Bryndís voru í heimsókn og Harpa og Svava líka...þannig að það var alveg fullt af fólki:) Það var nú voða gaman að hitta liðið og bæði Pétur og Harpa reyndu að selja mér mótorhjól:) þar sem maður er nú svo flottur á því að vera kominn með próf8)

En já man ekki meira í bili að skrifa...það kemur þá bara næst:)

Hilsen
Lullz


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2008 12:05:01 / elva

Í leikskóla er gaman...

Hæhæ

Langt síðan síðast:) En nú er líka sumarið búið...hehe...ég meina september er nú alveg að verða búinn og þá líða fer að jólum...hehe:d Nei við skulum nú ekki alveg gleyma okkur í gleðinni.

En allavega þá er ég að vinna á leikskólanum Sólgarði sem stendur og er meira að segja 20% deildarstjóri:) Já maður veður áfram á framabrautinni...hehe...VIð Óttar erum að kanna möguleikann á því að fara norður um áramótin. Óttar er búinn að senda fyrirspurn til HA en hérna vinnan kallar skrifa meira síðar...Börnin að vakna og svona:)

Leiter
lullz


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.08.2008 01:13:18 / elva

Íha....

....vildi bara láta ykkur vita að ég er komin með bifhjólapróf:)....hehehe

kv. lullan

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.08.2008 15:54:09 / elva

Bílafloti og kommentagleði

Já ég sé að þið hafið bætt ykkur alveg helling í að kommenta....þvílíkur dugnaður í liðinu maður:o

En já við Óttar vorum semsagt að kaupa okkur annan bíl....huhummm...og kannski svona tvær vikur síðan við keyptum hinn....hehehe....þeir eru báðir bláir og af gerðinni toyota en við ætlum nú ekki að eiga þá báða en ....

bis spater
lullz


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2008 20:54:00 / elva

Sumarfrí

Já börnin góð ég er komin í sumarfrí. Byrja ekki á leikskólanum fyrir sunnan fyrr en 8. septemtber þannig að þetta eru alveg tvær vikur. Þetta verður stuð, ég hef nefnilega aldrei tekið mér sumarfrí áður:)

Síðasti dagurinn á Krummakoti var í dag og það er ein lítil gella sem hefur mætur á mér, ekki orðin 2 ára. Svo kom hún til mín í útiverunni í dag og sagði: Ekki fara Elva Díana... Je minn þetta var nú pínu erfitt. Hún er svo mikið krútt. En það er alltaf jafnæðislegt að vera með þessum krílum.

En já eins og ég skrifaði síðast....í fússi:^)....þá er ég semsagt að læra á mótorhjól. Óttar er kominn með prófið...fór í það í gær,  svaka gæi.....hehe. En þetta er mjög gaman, fórum til Dalvíkur í eitt skiptið. Nánar tiltekið í fjórða tíma og þá hafði ég einmitt farið fjórum sinnum á mótorhjól....agalega klár:d

VIð frænkurnar erum að fara í bústað 5-7 sept. Það verður rosastuð:) Verður gaman að hitta kellurnar þar sem þær láta sjaldan vita af sér hér á síðunni....hehe...en Lilja kom í sveitina í dag. Er hætt að vinna á skriðuklaustrinu og er á leiðinni suður. Ákvað bara að koma í heimsókn í millitíðinni:)

Við Óttar ætlum í göngur til Öddu og Vídda 30. Það verður stuð því það eru nefnilega fjögur ár síðan  ég fór í göngur síðast og já talandi um það....í dag eru fjögur ár síðan við Óttar byrjuðum saman....og hvað haldiði....kallinn auðvitað kominn í Landmannahelli að spila bridds og verður þar alla helgina....frekar fyndið því við höfum aldrei náð að halda upp á þennan dag. Óttar var að vinna í þrjú síðustu skipti og alltaf langt fram á kvöld ca hálf tólf/tólf...þannig að við höfum bara aldrei haldið upp á þetta....en jæja ætla að hætta í bili og viljiði nú kommenta eitthvað, finnst nú svolítið lélegt hvað fólk er lítið að kommenta.

Tschus Lullz


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.08.2008 19:19:58 / elva

Nei hæ allir saman:)

Ég var búin að skrifa fullt en akkúrat þegar ég var að vista þá fór rafmagnið af húsinu og þar af leiðandi ráterinn úr sambandi og því hvarf færslan mín...helvíti.

En þið fáið bara nýja færslu þegar ég er búin að jafna mig á þessu:) EN annars er það nýjasta af mér að frétta að ég er að læra á mótorhjól

Meira síðar
lullz


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2008 22:55:59 / elva

Sumarið líður hratt...

...en það er nóg eftir enn:)

Veit að ég er búin að vera léleg að blogga en afsökunin er auðvitað sumarið og það er brjálað að gera:) Allar helgar eru þaulskipulagðar út í eitt...Húsavík, Flatey, Egilsstaðir,útilegur...þið vitið hvað ég meina.

Um síðustu helgi var rennt á Húsó, Óttar var á fermingarbarnamóti en ég skellti mér bara á djammið með Lindu og Önnu Björgu...Þetta var mjög skemmtilegt þar sem langt er síðan ég hef verið í gírnum:) Algjör snilld og svo er nú líka alltaf gaman að djamma á Húsó:)

Næstu helgi á að halda í rafting í Skagafjörðinn...við Óttar, Sara og Þórir, mamma og pabbi og Lilja ætlum að leggja í hættuför í vestari ánni...hahaha...svo kannski næ ég að draga þau með í þá austari næst....hehehehe

En það er nóg skipulagt framundan...Flatey, Mærudagar, líklega Timburmannahittingur og vonandi útilega á næsta leyti:)

En bið bara að heilsa ykkur í bili og ekki eiga von á neinu fyrr en í ágúst...það er nú einu sinni sumar8)

lullz


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 13:55:06 / elva

Ta ta ra:)

Hola

Það er sko búið að vera nóg við að vera um helgina...plöntun fram í Laugarengi og óvissuferð með vinnunni:) Ég varð að velja á milli og valdi óvissuferðina en sendi bara Óttar í plöntunina í staðinn...

Þetta var rosagaman...farið í alls konar leiki, keyrt út um allt og brjáluð stemmming á liðinu, farið í jarðböðin og að lokum grill og partý á gömlum bóndabæ í Fnjóskadalnum8)

Ég var svo svöl bara í götóttum plastskóm sem dugðu frekar illa þegar byrjaði að rigna..hehe...það var því gott að komast inn og fá lánaða ullarsokka og leyfa táslunum að vakna rólega aftur til lífsins:)

En annars er bara nóg að gera framundan...hið rómaða 5 ára reunion í MA er um næstu helgi...og það er búið að plana skemmtilegheit allavega þrjú kvöld...hehe...verst hvað það er dýr maturinn þarna 16. júní ... 8700 á kjaft takk fyrir...en hvað gerir maður ekki fyrir gleðina...hehe...

Lilja systir er á leið austur í þessum skrifuðu orðum...ég ætla að hitta á hana þegar hún keyrir í gegnum bæinn þar sem hún er með samansafn af dóti sem við Óttar gleymdum fyrir sunnan...og svo er ég nú líka með smá útskriftargjöf handa henni...

En já talandi um það...ég átti nú bara ekki að fá að útskrifast núna 14. júní...hehe...Lilja fékk sent bréf hingað heim í sambandi við útskriftina en ekki ég...og svo hafði hún verið að tala um eitthvað blað sem hún þurfti að fylla út í sambandi við útskriftina þannig að ég ákvað að hringja og kanna þetta og viti menn...mín bara ekki skráð...hehe...en það er búið að redda því:haha:...sem betur fer...:lol:

En jæja ég bið þá bara að heilsa í bili...

lullz


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 21:07:36 / elva

Pistill að norðan

jæja mínir kæru lesendur...hihi

Þá er rútínan komin á hér fyrir norðan. Byrjuð að vinna á leikskólanum og það er mjög skemmtilegt...þau eru svo mikil yndi þessi börn:) Það er mjög þægilegt að geta bara gengið í vinnuna og ekkert stress:)

Það er búið að vera mjög gott veður alla síðustu viku. VIð Óttar skruppum á Húsó um helgina og hjálpuðum tengdapabba við að mála botninn á bátnum hans...ég þurfti nú að berjast fyrir því að fá að gera eitthvað...er ekki vön því að þurfa aldrei að gera neitt...hehe...pabbi á náttúrulega þrjár dætur en tengdapabbi bara eina en aftur á móti tvo syni og dóttirin hefur aldrei þurft að hjálpa mikið til...heheh:) Þið vitið hvað ég meina... Tengdapabbi vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið ( en það var nú bara blíða:)) og spurði mig tvisvar hvort ég ætlaði að gera eitthvað...hihihi....þessir tengdapabbar...en á endanum var mér nú bara treyst fyrir límbandinu og það var nú nákvæmnisvinna:)...og svo fékk ég líka að mála...hehe

En já júróvísjón....hummm kom þetta mikið á óvart...14. sæti....það voru allir mjög bjartsýnir þar sem ég var og voru að spá því í 3.-6. sæti en ég sagði nú að það færi ekki hærra en 10.....hihi. Ég veit sko hvað ég syng:haha:

En já Óttar er á fullu að koma okkur í form...hér er farið út að hlaupa næstum á hverjum degi...ég hef nú bara farið þrisvar á rétt rúmri viku...en Óttar er aðeins aktívari (já ég veit var að klára íslensku í HÍ:lol:) hann fer að hlaupa næstum á hverjum degi ...er örugglega búinn að fara svona 6-7 sinnum...duglegur:) Við verðum sko í fantafínu formi þegar við komum suður í haust...þið skuluð bara vara ykkur:)

Og eitt enn...ég vil að þið kommentið  á þessari blessuðu síðu...það er ekkert gaman að vera að segja fréttir og enginn segir neitt:(...og ég vil ekki þurfa að endurtaka þetta í næsta pistli...hihi

Bis spater
Lullz


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 11:00:05 / elva

Allt bú...norður á morgun

Jæja þá er þessum fyrsta áfanga í háskólanum lokið.

Fór í síðasta og eina prófið núna á þriðjudag og það var bara geðveikt létt...hehehe...skilaði einnig ritgerðinni á skrifstofuna þannig að ég er laus og liðug. Fór í vinnu á miðvikudag og svo í klippingu í gær...plús það að ég keypti mér föt á sprengidegi í Debenhams....frábært:)

í kvöld er það svo útskriftargrillpartý hjá okkur Lilju og planið er svo að fara á ball með Palla á Nasa...og svo norður á morgun...Alltaf nóg að gera. Ég byrja svo í vinnunni á mánudag...þannig að það er ekki nein voðaleg pása.

Við Óttar skúruðum, skrúbbuðum og bónuðum alla íbúðina í gær eftir að hann kom heim úr síðasta prófinu sínu...svaka stuð...hann er nefnilega að fara á Stykkishólm að spila um helgina og því var þetta eini tíminn en nú er allt hreint og flott:)

En þá er það bara partý í kvöld:)

lullz


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 9265
RSS tengill